Mánudagur - fyrsta blogg á blog.is

Loksins fær þessi bloggsíða sem ég stofnaði árið 2006 hlutverk.

Áðan fékk ég svo einhverja löngun til að blogga um fráhaldið mitt.

Ég ákvað svo að byrja að blogga, afhverju ekki :) 

Ég er með aðra bloggsíðu þar sem ég hef bloggað lengi og hef gaman af. Hef aðeins verið að blogga um fráhaldið mitt á hinni síðunni minni en það eru ekki margir sem lesa þá síðu í sömu sporum og ég og skilja ekki alveg hvað klikkaða ég er að skrifa um. Ég skammast mín ekkert fyrir fráhaldið mitt og er ekki að fela það, það er ekki þess vegna sem ég vel að hafa tvær aðskildar bloggsíður.

Finnst rosalega gott að lesa blogg hjá öðrum í sömu sporum og ég og held að það sé gott fyrir mig að skrifa niður ýmsilegt sem poppar upp í hugann.

---------------

Hvítasunnuhelgin að renna sitt skeið og ég í fráhaldi og rosalega þakklát fyrir það.

Helgin er samt búin að vera nett erfið skal ég ykkur segja.

Fór í ferðalag með kærastanum sem var yndislegt en ég var ekkert rosalega sátt við að vera í fráhaldi. Langaði helst bara að taka gamla pakkann á þetta, kaupa inn heila innkaupakerru af einhverjum óþverra og bara "detta í það." Laugardagurinn var svolítið erfiður, en ég tók fráhaldið fram yfir ofátið þó svo að fyrsti hömlulausi bitinn hefði verið skammt undan. Gærdagurinn var svo enn verri, ég var svo rosalega á leiðinni í hömlulaust ofát að það er sorglegt að hugsa til þess. Var ógeðslega pirruð út í kærastann að styðja mig ekki í því að fá mér kolvetni, fannst hann alveg hræðilega leiðinlegur og ósanngjarn að styðja þetta "fáránlega" fráhald mitt.

Ég var komin í þær hugsanir að ég svindlaði bara í dag og svo byrjaði ég bara aftur á morgun, ekkert mál, þó svo að ég viti manna best að ég byrja ekkert aftur á morgun. Einn dagur er ekkert nóg fyrir mig. Einn biti er ekki nóg fyrir mig.

En fráhaldið fékk að vera í fyrsta sæti eina sekúndu í einu þó svo að ég væri ógeðslega ósátt við það og ég borðaði þriðju vigtuðu og mældu máltíðina mína í gærkvöldi ekkert of sátt.

Vaknaði svo í morgun gríðarlega þakklát fyrir að eiga þrítugasta og níunda daginn minn í fráhaldi. Þakklát fyrir að eiga kærasta sem styður mig og mitt fráhald 100%.

Vá hvað ég var glöð að ég var ekki við stjórnvölinn í gær. Ég reyndi að hlusta á minn æðri mátt og hvað væri rétt fyrir mig. Í dag veit ég hefði ekki valið rétt fyrir mig ef ég hefði fengið að velja í gær, ég setti þetta í hendurnar á æðri mætti og er á réttum stað í dag. Finn fyrir ró í huganum, ró sem var ekki til staðar á þessum tíma í gær.

Í dag er ég búin að borða tvær vigtaðar og mældar máltíðir og hlakka bara til að vigta og mæla þá þriðju. Ætla svo að reyna að fara á fund, því það er mánudagur og ég elska að fara á mánudagsfundi.

Ætla að eiga það sem eftir er af þessum degi í fráhaldi og svo einn dag í einu, eina mínútu í einu eða jafn vel eina sekúndu í einu ef þess þarf.

Takk fyrir mig.

- Ella -


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Dóra

Velkomin á moggablogg Ella...... Til hamingju með sigurinn á þráhyggjupúkanum um helgina......Hlakka til að sjá þig í kvöld.......

Helga Dóra, 12.5.2008 kl. 18:43

2 Smámynd: Sykurmolinn

Til hamingju með að hafa sigrað púkann.  Þessar pælingar þínar þekki ég mjöhöög vel.  Mér finnst þetta oft bara alveg ógeðslega erfitt, væri svo sannarlega til í bleika skýið sem einhverjir fljóta á, en ég veit bara að ofátið er ekki þess virði  er nú aldeilis búin að sjá það.....  En þetta er þrautseigur fjári.  Gangi þér vel skvísa

Sykurmolinn, 12.5.2008 kl. 19:54

3 Smámynd: Kristborg Ingibergsdóttir

Þú ert algjör hetja. Til hamingju með fráhadið þitt vina.

Kristborg Ingibergsdóttir, 12.5.2008 kl. 21:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband